NI NI NI

NI NI NI

10.04.2008 09:44:05 / gummis

...


Já, og svo á hún Hanna mín líka afmæli í dag...

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 09:42:52 / gummis

Afmælisdagurinn!

Jæja, nú er komið að deginum mikla, 10. apríl. Í dag gleðjast leiðtogar heimsins og mæta til veislu á fæðingarstaðnum, Michigan. George Bush feðgar, Benedikt 16., Kofi Annan, Vladimir Putin og Chuck Norris eru þegar mættir (komu í gær) til að undirbúa veisluhöldin. En fyrir þá örfáu sem ekki vita, þá á Steven Seagal 57 ára afmæli og hefur ríkisstjórn Íslands þegar leigt sér einkaflugvél sem fer með þá í veisluna í kvöld. Fagnað verður á Ingólfstorgi og Glerártorgi kl.18 í dag og safnað fyrir nýjum Akido skóla sem Steven mun kenna við á Þingeyri.

Til hamingju með daginn Steven,

kær kveðja, Gummi


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 09:52:55 / gummis

Gleðileg jól

Stjórn fyrirtækisins NI vill óska starfsfólki og velunnurum fyrirtækisins gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Starfsmenn fá veglegan kaupauka í desember, eða einn milljarð króna hver, ásamt pakka af Lambi klósettpappír. Stjórnarmenn hafa afþakkað milljarðinn vegna óvissu á fjármálamörkuðum en tóku fegins hendi við Lambi pakkanum.

 

 

Jólakveðja, stjórn NI


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 22:13:21 / gummis

Óþolandi bankar

Sparisjóðurinn styrkir geðheilsu barna og unglinga - það hefur ekki farið framhjá mörgum býst ég við. Ég hef samt sterkan grun um að kostnaðurinn við að auglýsa það að þeir styrki geðheilsuna sé meiri en styrkurinn sem þeir veita til geðheilsunnar... Finnst fólki þetta eðlilegt? (ánægður með að vera búinn að skipta úr sparisjóðnum...)

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 20:52:42 / gummis

Steingeit

Steingeitin ætti alltaf að hafa meðferðis ferðaklósett því henni hættir til að verða mál hvar og hvenær sem er og þegar steingeit er mál þá er henni mál! Lítill tími er til stefnu að finna næsta klósett. Ef ekki er hægt að taka ferðaklóið með er bara ágætt að vera með plastpoka (hægt að geyma pappír í pokanum (bara að passa að taka hann úr áður en byrjað er)) sem auðvelt er að loka.

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 20:48:02 / gummis

Meyja

Þú ert heppin að vera meyja en óheppinn ef þú ert meyja, meyjur upplifa nefnilega í hvert skipti sem þær hafa hægðir áþekka upplifun og meyfæðingu frelsara vors. Þið sem heppnar eruð skuluð njóta þess í hvert skipti og minnast frelsarans. Og þegar hart er í ári skal minnast kvalanna sem hann gekk í gegnum fyrir okkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 15:45:33 / gummis

Vatnsberi

Það ætti enginn vatnsberi að hafa hægðir í dag eða næstu daga. Ef svo ólíklega vildi til að hann hefði hægir ætti hann að lesa vel í þær hvað varðar framtíðina. Litur, áferð og þéttleiki hægðanna getur sagt mikið um ástarmálin á næstu dögum. Þá eru meiri líkur en minni á dökkri framtíð í þeim málum, þess vegna ættu vatnsberar ekki að hafa hægðir næstu daga.

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 15:32:34 / gummis

Naut

Haltu í þér eins og þú getur í nokkra daga - ekki gefast upp, ef ekkert gengur reyndu þá að komast í framandi umhverfi þar sem þú gætir átt erfitt með hægðir. Náir þú að halda í þér í fimm daga mun renna upp fyrir þér ljós heimsins, þú gætir átt von á köllun og margir munu líta upp til þín og treysta á þig - aðeins ef þú nærð fimm daga höldu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2007 11:56:35 / gummis

Siðir og venjur

Það er nú ekki oft sem ég fæ tilefni til að blogga en nú gerðist það í fyrsta skipti í langan tíma.

 

Þannig er að ég er staddur á Akureyri hjá minni heittelskuðu og við skruppum að fá okkur að borða í hádeginu í gær (og kíkja á einhverja útsölu á barnafötum sem var svo ekki neitt neitt). Svo erum við að keyra við "aðalgötuna" (þar sem akureyringar kalla wall street), veit aldrei hvað þessi gata heitir, og þar er strætóskýli með glæru plasti til að hlífa gestum fyrir veðri og vindum. Inn í þessu strætóskýli er svo kona á hækjum sér með girt niðrum sig! Við náttúrulega gláptum á þetta athæfi hennar en tókst ekki að sjá hvort hún væri að losa sig við úrgang eða bara hvað hún yfir höfuð væri að gera. Datt nú helst í hug að þetta væri einhver gjörningur listnema eða eitthvað slíkt, kannski lokaverkefnið hennar! Nokkru síðar keyrum við aftur framhjá en þá hafði strætóinn sennilega verið búinn að pikka upp þessa konu, en það var pollur inn í strætóskýlinu þar sem konan hafði verið á hækjum sér. Ekki vissi ég að þessi siður sé við lýði hér í Eyjafirðinum - en alltaf kemur eitthvað nýtt manni á óvart og maður þarf að kynna sér siði og venjur á nýjum stöðum.

 

Heil og sæl, Gummi


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2007 18:03:50 / gummis

Vog

Farðu í Fossvoginn og láttu hægðum fuglanna rigna yfir þig að næturlagi í Skógrækt Reykjavíkurborgar. Þá kemstu í þitt eigið jafnvægi á klósettinu sem hefur ekki verið upp á sitt besta það sem af er árinu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 18:09:34 / gummis

Krabbi

Orð þín eru áhrifarík en hægðirnar áhrifaríkari! Ekki hika við að nota hægðirnar til að ná til fólks því oftast eru samskipti betri í gegnum hægðirnar - fáðu fólk með þér á almenningssalernin (þar sem hægt er að tala saman) og haltu fundina þar. Og ekki hika við að hringja í vinina meðan hægðirnar renna út.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 17:29:09 / erna

Ammæli :)

Innilega til hamingju með afmælið HlynsiBoy 8)

Hér færðu smá Ballerinukex að gjöf!

...en enga kippu af Thule...

Kv. Sigríður og Jóhanna


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 18:06:02 / gummis

Tvíburi

Það er enginn tvíburi sannur tvíburi ef hann hefur ekki prófað eða notar venjulega ástarklósettið, fylgjandi er slóð sem sýnir hreyfimynd af þeim merka hluti.

http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&ba=leita&leit=kl%F3sett&id=2769

Annars á tvíburinn ávallt að vera jákvæður út í hægðirnar sínar og aldrei að blóta þeim, sama hversu harðar eða linar þær eru. Jákvæðnin hjálpar alltaf til að fá góðar hægðir.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 10:37:49 / gummis

Fiskar

Ef þú hefur ekki enn leitað upprunans þá skaltu gera það í dag, kúkaðu á kafi í vatni og líf þitt mun breytast mikið á næstunni. Hin forna speki "Fiskar kúka í kafi" á enn vel við í dag og því er þér ekkert til fyrirstöðu að láta verða af því.

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 13:18:01 / gummis

Ljónið

Hægðirnar eru með betra mótinu seinni part dagsins þessa vikuna, reyndu að halda í þér þar til eftir kl.15:00 og þú munt eiga betri hægðir en þig hefur dreymt um. Ef eitthvert stoppelsi er að hrjá þig skaltu ekki hika við að taka hægðarlosandi efni til að minnka kvalirnar. Það er ágætis ávani að hafa lestrarefni við klósettið og ekki heldur vitlaust að reyna að bæta metin í tölvuleikjunum í símanum, þetta er vikan þín í tölvuleikjunum í símanum á klósettinu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Myndir ÁSTRALÍU